Hildigunnur Ólafsdóttir fæddist 25. janúar 1945. Hún lést 20. október 2024.

Hildigunnur var jarðsungin 15. nóvember 2024.

Nú er hún Hildigunnur okkar flogin á brott rétt eins og farfugl til fjarlægra landa. Kær vinkona til margra ára hefur kvatt að sinni, en öll munum við hittast síðar á annarri strönd.

Við vorum ellefu ungar stúlkur sem stofnuðum saumaklúbb, en með árunum hefur fækkað í hópnum og erum við fimm sem fylgjum góðri vinkonu í dag. Þó að með tímanum væri lengra á milli þess sem við hittumst þá slitnaði aldrei sú taug sem stofnað var til á unglingsárunum.

Margt var brallað og margs er að minnast. Við vorum nokkuð uppátektasamar þó hófs væri gætt. Við vorum ansi fínar að eigin mati þegar ekið var einn hring með Hagavagninum klæddar í spariföt af

...