Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að ný bygging fyrir geðþjónustu Landspítala verði staðsett utan Hringbrautarlóðar. Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu segir að nýtt húsnæði fyrir geðþjónustu verði í innan við fimm…
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að ný bygging fyrir geðþjónustu Landspítala verði staðsett utan Hringbrautarlóðar.
Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu segir að nýtt húsnæði fyrir geðþjónustu verði í innan við fimm kílómetra fjarlægð frá Hringbraut og að það sé gert til að tryggja nálægð við aðra þjónustu spítalans.
Áætlað er að nýtt húsnæði fyrir geðþjónustu spítalans verði ekki tekið í notkun fyrr en eftir 10-15 ár. Aftur á móti er áætlaður framkvæmdatími byggingarinnar fimm ár og væntingar um verklok árið 2029 eða 2030. „Með nýju staðarvali er lagt upp með að hraða framkvæmdum og tryggja að húsnæðið og umhverfi þess uppfylli nútímakröfur um batamiðaða hönnun,“ er haft eftir heilbrigðisráðherra.