Ibrahima Baldé, senegalski knattspyrnumaðurinn sem hefur leikið með Vestra undanfarin tvö ár, hefur ákveðið að yfirgefa félagið eftir að samningar náðust ekki á milli hans og Vestra. Þetta tilkynnti hann í samtali við Morgunblaðið en Baldé, sem er…
Ibrahima Baldé, senegalski knattspyrnumaðurinn sem hefur leikið með Vestra undanfarin tvö ár, hefur ákveðið að yfirgefa félagið eftir að samningar náðust ekki á milli hans og Vestra. Þetta tilkynnti hann í samtali við Morgunblaðið en Baldé, sem er 28 ára gamall miðjumaður, var lykilmaður í liði Vestra árið 2023 þegar liðið tryggði sér sæti í Bestu deildinni. Hann var í stóru hlutverki með liðinu í sumar í Bestu deildinni og lék 23 leiki.