Þjálfari Jamil Abiad var ráðinn þjálfari kvennaliðsins í sumar.
Þjálfari Jamil Abiad var ráðinn þjálfari kvennaliðsins í sumar. — Morgunblaðið/Eggert

Atvinnuleyfi Jamils Abiads, þjálfari kvennaliðs Vals í körfuknattleik og aðstoðarþjálfari karlaliðsins, er útrunnið. Þetta herma heimildir Morgunblaðsins. Jamil var fjarri góðu gamni þegar Valsmenn unnu sjö stiga sigur á KR, 101:94, í 7. umferð úrvalsdeildar karla á Hlíðarenda í fyrradag. Valsmenn vinna nú hörðum höndum að því að endurnýja atvinnuleyfið en Jamil verður ekki með liðinu um helgina þegar Valur mætir Aþenu í Austurbergi.