Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur heimilað Úkraínumönnum að nota öflugar bandarískar langdrægar eldflaugar, eða ATACMS-vopnakerfið, á rússneskri grundu. Ákvörðunin er tekin eftir að Rússar sendu nærri 50 þúsund hermenn til Kúrsk-héraðs í suðurhluta Rússlands. Úkraínumenn hófu innrás í héraðið í sumar.
Þúsundir norðurkóreskra hermanna hafa verið sendar til héraðsins. Biden og ráðgjafar hans hafa áhyggjur af því að þátttaka Norður-Kóreu gæti leitt af sér nýjan fasa í stríðinu. Ákvörðunin um að leyfa notkun ATACMS-kerfisins hefur verið til skoðunar í marga mánuði. Sumir bandarískir embættismenn telja að notkun kerfisins muni leiða til stigmögnunar stríðsins. Volodimír Selenskí Úkraínuforseti hefur lengi kallað eftir því að fá að
...