Dansgarðurinn sýnir jólasýninguna Hnotubrjótinn á morgun, þriðjudaginn 19. nóvember, í Borgarleikhúsinu klukkan 16 og 18.30. Er þetta í fjórða sinn sem Dansgarðurinn sýnir Hnotubrjótinn og er því um að ræða sannkallaða jólahefð. „Hnotubrjóturinn er skemmtilegt ævintýri fullt af töfrum,“ segir í tilkynningu en þar kemur einnig fram að verkið sé tilvalið til að kynna börnum og dansunnendum klassískan ballett þar sem sýningin sé aðgengileg öllum. Miðar fást á tix.is.