Svartur á leik.
Svartur á leik.

1. c4 Rf6 2. g3 g6 3. Bg2 Bg7 4. Rc3 d6 5. d4 0-0 6. h3 c6 7. e4 a6 8. Be3 b5 9. f4 e5 10. dxe5 dxe5 11. Dxd8 Hxd8 12. Rge2 Be6 13. cxb5 axb5 14. f5 Bc4 15. g4 b4 16. Rb1 Hd3 17. Rd2 Bb5 18. Rf1 Ra6 19. Rc1 Hdd8 20. a4 bxa3 21. Hxa3 Bf8 22. Ha1 Rc5 23. Hxa8 Hxa8 24. Rg3 Ha4 25. fxg6 hxg6 26. g5 Rcxe4 27. Rxe4 Rxe4 28. b3 Hb4 29. Kd1 Be7 30. He1 Rxg5 31. Bd2 Hd4 32. Kc2

Staðan kom upp í efstu deild fyrri hluta Íslandsmóts skákfélaga sem lauk fyrir skömmu í Rimaskóla. Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2.478) hafði svart gegn Dananum Mikkel Jacobsen (2.322). 32. … Hxd2+! og hvítur gafst upp enda tveimur peðum undir og með gjörtapað tafl eftir 33. Kxd2 Bb4+. EM í opnum flokki stendur yfir þessa dagana í Petrovac í Svartfjallalandi og taka nokkrir íslenskir titilhafar þátt í mótinu, sjá nánar á skak.is.