Óskar Bjarni Óskarsson lætur af störfum sem þjálfari karlaliðs Vals í handknattleik að yfirstandandi tímabili loknu. Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari kvennaliðs Vals, tekur þá við starfinu af honum. Óskar Bjarni hefur nokkrum sinnum tekið við liðinu í gegnum árin.

„Ég segi ekki að þetta sé síðasta skiptið. 26 ár eru langur tími en ég er ekki hættur einu né neinu, ætla ekki að vera með neinar yfirlýsingar,“ sagði Óskar Bjarni meðal annars í samtali við Morgunblaðið. » 26