Knattspyrnukonan Hrafnhildur Salka Pálmadóttir er að ganga til liðs við Val frá Stjörnunni. Þetta tilkynnti Stjarnan á samfélagsmiðlum sínum í gær en Hrafnhildur, sem er fædd árið 2008, lék níu leiki með Stjörnunni í Bestu deildinni í sumar. Þá lék hún sjö leiki með HK í 1. deildinni, þar sem hún var á láni fyrri hluta tímabilsins, og skoraði í þeim þrjú mörk. Hrafnhildur hefur verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands þar sem hún á 17 leiki að baki.