Kristján Elberg Guðmundsson fæddist í Grundarfirði, Eyrarsveit á Snæfellsnesi 31. október 1944. Hann lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 5. nóvember 2024.

Foreldrar hans voru Guðmundur Bjarnason bátasmiður, f. 19.10. 1902, d. 4.1. 1951, og Guðrún Kristín Björnsdóttir húsfreyja, f. 24.5. 1914, d. 17.4. 1981.

Systkini Kristjáns: Herdís, hjúkrunarkona í San Francisco í Bandaríkjunum, f. 12.7. 1935, d. 28.5. 2018. Björn trésmiður, f. 13.9. 1936, d. 7.1. 1991.

Lárus Lárberg framkvæmdastjóri, f. 7.10. 1938. Guðbjörg, fóstra og leikskólastjóri, f. 17.12. 1941, d. 16.4. 2021, Jósefína verslunarmaður, f. 25.8. 1943. Ólafur framkvæmdastjóri, f. 12.7. 1946. Jóna hjúkrunarfræðingur, f. 31.12. 1947. Guðmundur skipaskoðunarmaður, f. 26.4.

...