Afturelding og Fram tryggðu sér í gær sæti í átta liða úrslitum bikarkeppni karla í handknattleik með góðum útisigrum í 16-liða úrslitum.
Afturelding heimsótti HK í Kórinn og vann 28:24. Einar Baldvin Baldvinsson fór á kostum í marki Aftureldingar er hann varði 18 skot og var með 44% markvörslu.
Fram heimsótti Víking úr Reykjavík á gamla heimavöll sinn í Safamýri og vann auðveldan sigur, 43:24.