Alexandra Chernyshova
Alexandra Chernyshova

Alexandra Chernyshova, sópransöngkona og tónskáld, tók í ágúst þátt í alþjóðlegri samkeppni í Salzburg í Austurríki, Salzburg International Music Competition, en hún fer fram rafrænt. Var Alexöndru nýlega tilkynnt að hún hefði lent í öðru sæti í flokki atvinnusöngvara. Í tilkynningu er þess getið að Alexandra gaf út nýtt myndband með aríu úr óperunni Rómeó og Júlíu, „Je veux vivre“, en það má finna á YouTube.