Christa María Heiðberg fædd Altmann fæddist 21. janúar 1932. Hún lést 28. júlí 2024. Útför fór fram 23. september 2024.
Elsku amma.
Ég sakna þín svo mikið. Þú varst alltaf svo góð við mig og það var alltaf svo gaman að koma til þín. Við fórum í göngutúra að tjörninni og gáfum öndunum brauð þegar það var gott veður. Skemmtilegast og mest spennandi var þó að spila saman gamla hattaspilið uppi í stofu en það gat tekið langan tíma. Alltaf var nóg til af öllu sem mér fannst gott eins og snakki og alls konar ís í frystinum. Við fórum oft í sund saman en Kópavogslaugin var þitt uppáhald. Þú vildir fara snemma en fyrst var alltaf farið í heita pottinn og spjallað við vinina. Síðan komið við í rennibrautalauginni þar sem þú horfðir á mig renna mér nokkrar ferðir og síðan synt í stóru lauginni sem gerði þér svo gott. Eftir það fórum við í bakaríið þar sem
...