Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Engin íbúð hefur selst á þremur þéttingarreitum í Reykjavík síðastliðinn einn og hálfan mánuð. Á þremur öðrum reitum seldust sjö íbúðir, þar af fjórar í Þverholti 13, en alls seldust sjö af 160 íbúðum sem voru til sölu á þessum sex reitum. Þetta má ráða af söluvefjum þessara verkefna (sjá graf).
Hin hæga sala vekur athygli í ljósi staðsetningar þessara reita og umræðu um íbúðaskort. Vaxtakjör hafa áhrif á eftirspurn eftir íbúðum en til tíðinda
...