Margrét Haraldsdóttir fæddist 15. janúar 1932 á Frostastöðum í Skagafirði.
Hún lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki 6. nóvember 2024.
Foreldrar hennar voru Haraldur Jóhannesson, f. 21. desember 1903, d. 11. júní 1994, og Anna Bergsdóttir, f. 7. júní 1897, d. 26. janúar 1991.
Bræður Margrétar voru: Bergur, f. 8. nóvember 1926, d. 17. ágúst 2006; Kjartan, f. 18. september 1928, d. 22. október 1975; Rögnvaldur, f. 17. júní 1934, d. 12. nóvember 2009; Birgir, f. 1. febrúar 1937, d. 17. október 2017.
Á gamlársdag 1953 giftist Margrét Sigurði Sigurðssyni bónda á Sleitustöðum.
Hann var sonur Sigurðar Þorvaldssonar, f. 23. janúar 1884, d. 21. desember 1989, og Guðrúnar Sigurðardóttur, f. 29.
...