Danmörk Arnar Grétarsson yrði aðalþjálfari ef hann tekur við.
Danmörk Arnar Grétarsson yrði aðalþjálfari ef hann tekur við. — Ljósmynd/Kristinn Steinn

Arnar Grétarsson og Eiður Smári Guðjohnsen koma til greina sem næstu þjálfarar danska knattspyrnuliðsins Kolding. Bold í Danmörku greinir frá því að Kolding hafi boðað Arnar, sem hefur verið án starfs síðan hann var rekinn frá Val á miðju síðasta tímabili, í viðtal vegna starfsins. Fari svo að Arnar fái starfið gæti Eiður Smári Guðjohnsen fylgt honum til Danmerkur. Eiður þjálfaði síðast karlalið FH en lét af störfum í lok árs 2022.