Landað var úr Stapafelli SH 26 í Reykjavíkurhöfn í vikunni, en báturinn er á dragnótaveiðum á Faxaflóa þessa dagana. Segir Björn Elías Halldórsson skipstjóri í samtali við Morgunblaðið að veiðin undanfarið hafi verið ævintýraleg. Nær allur aflinn er vænn þorskur, 7-9 kg að þyngd. Ekki þarf að sækja langt, en þegar rætt var við skipstjórann í gær var báturinn fimm mílur úti af Gróttu og stefndi í fullfermi.