Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

Sala á jólabjór í Vínbúðum ÁTVR er ívið meiri í ár en á sama tíma í fyrra. Samkvæmt upplýsingum frá ÁTVR höfðu 270.787 lítrar af jólabjór selst þar á bæ þegar verslunum var lokað á miðvikudaginn síðasta. Til samanburðar höfðu 264.900 lítrar selst í lok dags 11. desember í fyrra.

Vert er að hafa í huga að í fyrra hófst sala á jólabjór 2. nóvember en í ár hófst salan hins vegar 31. október. Þá er mismunandi hvernig helgar leggjast milli ára en þá er mesta salan. Ef hins vegar er aðeins horft á söluna fram til 11. desember í ár og í fyrra hefur hún aukist um 2,2% á milli ára.

Sem fyrr er Tuborg-jólabjórinn sá langvinsælasti en hlutdeild þessa vinsæla bjórs hefur þó ótrúlegt en satt aukist á milli ára. Síðustu

...