Lilja og Ingibjörg Birgisdætur í listasamsteypunni Fischersundi munu koma fram á alþjóðlegu ráðstefnunni DesignTalks sem fram fer í Hörpu 2. apríl 2025 undir þemanu Uppspretta. Segir í tilkynningu að jafnframt muni aðrir meðlimir taka þátt í að búa…
Design Talks Systurnar Ingibjörg og Lilja Birgisdætur í Fischersundi.
Design Talks Systurnar Ingibjörg og Lilja Birgisdætur í Fischersundi.

Lilja og Ingibjörg Birgisdætur í listasamsteypunni Fischersundi munu koma fram á alþjóðlegu ráðstefnunni DesignTalks sem fram fer í Hörpu 2. apríl 2025 undir þemanu Uppspretta. Segir í tilkynningu að jafnframt muni aðrir meðlimir taka þátt í að búa til spennandi ferðalag um töfrandi heima Fischersunds. „Systkinin Inga, Jónsi, Sigurrós og Lilja ásamt Sindra og Kjartani mynda listasamsteypuna Fischersund, sem sameinar myndlistar- og tónlistargrunn meðlimanna í sterkt skapandi afl á sviði íslenskrar konseptsamtímalistar. Sögulega svarta húsið við Fischersund 3 er hjartað í ilmunum þeirra og þar birtist frásagnarlist í hverjum ilmi í fallegu samhengi við tónlist, myndlist og ljóðlist.“ Að sögn Lilju hefur þörfin í nútímasamfélagi aldrei verið meiri „og er áhugavert að skynja hvernig ilmur tengir fólk. Við erum svo vön að horfa og dæma með rökhugsuninni einni en ilmir fara aðra leið, fram hjá þeirri hindrun og beint að kjarnanum,

...