1. Rf3 Rf6 2. g3 g6 3. Bg2 Bg7 4. 0-0 0-0 5. c4 c6 6. b3 Re4 7. d4 d5 8. Bb2 a5 9. Rc3 Rxc3 10. Bxc3 Bf5 11. cxd5 cxd5 12. Re5 Rc6 13. Rxc6 bxc6 14. Dd2 a4 15. Bb4 axb3 16. axb3 Dd7 17. Dc3 Db7 18. Bc5 Bf6 19. h3 Hxa1 20. Hxa1 Ha8 21. g4 Be6 22. Hxa8+ Dxa8 23. e3 Da2 24. Bf3 Bh4 25. De1 Dxb3 26. De2 Da4 27. e4 dxe4 28. Bxe4 Bd5 29. Bxd5 cxd5 30. Bxe7
Staðan kom upp á Íslandsmótinu í atskák en það fór fram í Bankanum Vinnustofu á Selfossi fyrir skömmu. CAD-bræður sáu um mótshaldið og styrkti Mar Seafood restaurant mótið. Magnús Pálmi Örnólfsson (2.102) hafði svart gegn Oliveri Jóhannessyni (2.195). 30. … De8! og hvítur gafst upp. HM í at- og hraðskák fer fram dagana 26.-31. desember næstkomandi. Heimsmeistaramótið fer fram í New York og má reikna með að einn íslenskur skákmaður taki þátt í því, sjá skak.is.