Þegar kirkjuklukkurnar hringja inn jólin klukkan sex í dag, aðfangadag, er Ástbjörn Egilsson í vinnunni í Dómkirkjunni í Reykjavík eins og vanalega á þessum tíma á hverju ári frá 1999. „Það er yndislegt að vera í kirkjunni á aðfangadag, eins og reyndar alla daga,“ segir hann
Í Dómkirkjunni Ástbjörn Egilsson var lengi kirkjuhaldari og framkvæmdastjóri sóknarnefndar.
Í Dómkirkjunni Ástbjörn Egilsson var lengi kirkjuhaldari og framkvæmdastjóri sóknarnefndar. — Morgunblaðið/Eyþór

Steinþór Guðbjartsson

steinthor@mbl.is

Þegar kirkjuklukkurnar hringja inn jólin klukkan sex í dag, aðfangadag, er Ástbjörn Egilsson í vinnunni í Dómkirkjunni í Reykjavík eins og vanalega á þessum tíma á hverju ári frá 1999. „Það er yndislegt að vera í kirkjunni á aðfangadag, eins og reyndar alla daga,“ segir hann. „Þetta er gott samfélag og verður enn betra á stórhátíðum eins og jólum og páskum.“

Kirkjuhaldari Dómkirkjunnar fer með peningamálin, undirbýr bókhaldið fyrir bókara, sér um að viðhaldi sé sinnt og er í raun framkvæmdastjóri. Ástbjörn var kirkjuhaldari og framkvæmdastjóri sóknarnefndar frá 1999 til 2014 og hefur síðan verið með annan fótinn í kirkjunni.

„Ég hleyp til þegar þörf er á,“ segir hann. Bætir við

...