RÚV Tapið af rekstrinum í ár nemur 150-200 milljónum króna.
RÚV Tapið af rekstrinum í ár nemur 150-200 milljónum króna. — Morgunblaðið/Eggert

Stefnt er að því að Ríkisútvarpið ohf. skili jákvæðum rekstrarafgangi á næsta ári og að hagnaður ársins verði að minnsta kosti 100 milljónir króna fyrir skatta. Með þessu á að vinna til baka um helming af rekstrartapi ársins í ár og bæta sjóðstöðu félagsins. Þetta kom fram í drögum að rekstraráætlun sem kynnt voru á fundi stjórnar RÚV 27. nóvember síðastliðinn en fundargerð fundarins var nýverið birt á vef RÚV.

Áætlun um bætta afkomu Ríkisútvarpsins felst fyrst og fremst í aðhaldi í launakostnaði, lækkun fjármagnskostnaðar, minna umfangi sýningarrétta á íþróttum og öðru aðhaldi í rekstri, segir í fundargerðinni.

Miðað er við að launakostnaður verði ekki hærri en 43% af svokölluðum þjónustu- og auglýsingatekjum á næsta ári. Það svari til þess að launakostnaður verði um 3,9 milljarðar króna og að meðalfjöldi stöðugilda á árinu verði ekki

...