Ungahlutfallið hjá heiðagæsum í ár var betra en menn leyfðu sér að vona að sögn Arnórs Þóris Sigfússonar dýravistfræðings hjá Verkís. Vegna hrets í júní var óvissa um hvernig gæsavarpið myndi heppnast hjá heiðagæsum en ungahlutfallið var um 26%
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Ungahlutfallið hjá heiðagæsum í ár var betra en menn leyfðu sér að vona að sögn Arnórs Þóris Sigfússonar dýravistfræðings hjá Verkís. Vegna hrets í júní var óvissa um hvernig gæsavarpið myndi heppnast hjá heiðagæsum en ungahlutfallið var um 26%.
„Það er þokkalegt, en maður óttaðist að það yrði verra vegna þess að það kom hret akkúrat þegar ungarnir voru sums staðar að koma úr eggjum. 26% er svipað og verið hefur undanfarin ár fyrir
...