Matvælasýning Guðmundur og Sigrún í Laugardalshöllinni um miðjan níunda áratuginn en Vogabær var með kynningar á öllum matvælasýningum sem voru haldnar á þessum árum.
Matvælasýning Guðmundur og Sigrún í Laugardalshöllinni um miðjan níunda áratuginn en Vogabær var með kynningar á öllum matvælasýningum sem voru haldnar á þessum árum.

Guðmundur Sigurðsson fæddist 1. janúar 1945 og varð því áttræður í gær. Guðmundur fæddist í Keflavík og ólst þar upp. Hann var í sveit í Skipanesi í Leirársveit.

Guðmundur gekk í Barnaskóla Keflavíkur og síðan í Gagnfræðaskóla Keflavíkur. Hann fór á sjóinn í fjögur ár. Eftir það fór hann að læra rafvirkjun og vann við það í fimm ár. Hann réð sig síðan í vinnu hjá Árna Samúelssyni og Guðnýju Ásberg í matvöruversluninni Víkurbæ en hafði auk þess unnið í Nýja Bíó í Keflavík hjá þeim.

„Árið 1976 keyptum við hjónin matvöruverslun í Vogum á Vatnsleysuströnd og rákum hana í níu ár, en á þessum tíma fóru stóru verslunarkeðjurnar að byggja matvöruverslanir í Keflavík og Njarðvík. Við það hrundi salan í verslun okkar og við sáum ekki leið úr þessu nema að prófa okkur áfram með að laga ídýfur til þess að laða okkar kúnna aftur að verslun okkar. Ídýfan

...