Allir stjórnmálamenn vonast eftir því að komast í meirihluta. Það viðurkennir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fyrrverandi forsætisráðherra fúslega. En hann segist kunna ágætlega við sig í vörninni einnig. Verkefnin fram undan muni markast allnokkuð af þingmálaskrá meirihlutans sem enn hefur ekki litið dagsins ljós. Sigmundur segir að stjórnarandstaðan nú verði mjög mikilvæg, hún takist á við kerfisstjórn, sem sé að taka við af annarri viðlíka.

Sigmundur Davíð fer um víðan völl á vettvangi Spursmála.