Á undanförnum þremur áratugum hafa miklar framfarir átt sér stað í tengslum við réttindi barna. Eftir sem áður bíða stjórnvalda stór verkefni.
Salvör Nordal
Salvör Nordal

Salvör Nordal

Um áramótin voru 30 ár liðin frá því að embætti umboðsmanns barna var sett á laggirnar, embætti sem ætlað er að vera sérstakur málsvari barna og réttinda þeirra í samræmi við Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Frá stofnun embættisins hafa miklar breytingar orðið á stöðu barna og almennur skilningur á réttindum barna og þátttöku þeirra í samfélaginu hefur vaxið. Þá hefur embættið styrkst umtalsvert á liðnum áratugum, ekki síst með lagabreytingum sem gerðar voru 2018 sem fólu í sér ný verkefni og aukin tækifæri fyrir embættið.

Í tilefni afmælisins verður dagskrá í Hörpu 9. janúar næstkomandi þar sem kynnt verða nokkur þeirra verkefna sem embættið mun leggja sérstaka áherslu á næstu mánuðina. Má þar nefna birtingu upplýsinga um bið barna eftir þjónustu, leiðbeiningar sem embættið hefur unnið um mat á áhrifum á börn í samvinnu við mennta-

...