Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur ráðið þá Sigurjón Arnórsson og Hreiðar Inga Eðvarðsson sem aðstoðarmenn sína.
Í tilkynningu á vef félags- og húsnæðismálaráðuneytisins kemur fram að Sigurjón hafi verið aðstoðarmaður Ingu frá árinu 2017. Hann er með B.A.-gráðu í hagfræði, heimspeki og stjórnmálafræði frá Háskólanum á Bifröst og M.Sc.-gráðu í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík.
Hreiðar Ingi er lögfræðingur að mennt en hann var áður framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins.