Tónlistarnæring í Garðabæ hefst á ný í hádeginu í dag, miðvikudag, kl. 12.15 í sal Tónlistarskóla Garðabæjar við Kirkjulund. Þar flytja Íris Björk Gunnarsdóttir sópransöngkona og Matthildur Anna Gísladóttir píanóleikari efnisskrá „sem…

Tónlistarnæring í Garðabæ hefst á ný í hádeginu í dag, miðvikudag, kl. 12.15 í sal Tónlistarskóla Garðabæjar við Kirkjulund. Þar flytja Íris Björk Gunnarsdóttir sópransöngkona og Matthildur Anna Gísladóttir píanóleikari efnisskrá „sem samanstendur af aríum sem eiga það sameiginlegt að vera fullar af von, hlýju og birtu. Þeirra á meðal eru aría Neddu úr I Pagliacci, aría Mimi úr La Bohéme, Söngur Sólveigar eftir Grieg, aría Marguerite úr Faust eftir Gounod sem og aríur úr Turandot og Madömu Butterfly,“ segir í viðburðarkynningu. Aðgangur er ókeypis.