Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, réðst í húsleit hjá Lyfjum og heilsu í október á síðasta ári. Lyf og heilsa, sem er í söluferli, er í eigu Jóns Hilmar Karlssonar í gegnum Toska ehf og Fastar ehf. Áður hafði komið fram að ESA hefði ráðist í húsleit hjá fjárfestingarfélaginu Skel, en félagið fer með 81% hlut í Lyfjavali.
Var þetta í fyrsta skipti sem slík aðgerð var framkvæmd á Íslandi.
Félögin tvö hafa kært aðgerð ESA til EFTA-dómstólsins, en af gögnum málsins má ráða að athugun ESA varði meint samráð fyrirtækjanna tveggja tengt eignaskiptasamningi þeirra í milli sem varðar tvö verslunarpláss.
Nánar tiltekið varði meint brot við 53. grein EES-samningsins sem bannar alla samninga milli fyrirtækja, ákvarðanir samtaka fyrirtækja og samstilltar aðgerðir sem geta haft áhrif á viðskipti milli EFTA-
...