Fyrst er það rugl dagsins eftir Jón Jens Kristjánsson: Er Sigfinnur setti upp tærnar settu margir í brýrnar samt vor' ei ástæður ærnar aftur á móti kýrnar. Vísnagáta liðinnar viku barst sem endranær frá Páli Jónassyni í Hlíð á Langanesi: Oft með fiski orðið sá, uppnefni á feitum

Pétur Blöndal

p.blondal@gmail.com

Fyrst er það rugl dagsins eftir Jón Jens Kristjánsson:

Er Sigfinnur setti upp tærnar

settu margir í brýrnar

samt vor' ei ástæður ærnar

aftur á móti kýrnar.

Vísnagáta liðinnar viku barst sem endranær frá Páli Jónassyni í Hlíð á Langanesi:

Oft með fiski orðið sá,

uppnefni á feitum.

Brauð sem kemur Berlín frá

blönduð góðum stundum á,

einkum þó í afmæli og teitum.

Eins og vísnaáhugamenn þekkja felst merking lausnarorðsins í hverri línu vísnagátunnar.

...