Í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins talar Kristrún Frostadóttir opinskátt um æskuna, unglingsárin, námsferil sinn og hvernig hún fyrir tilviljun endaði í stjórnmálum. Menntaskólaár hennar voru nokkuð óvenjuleg þar sem hún hafði á Spáni kynnst strák frá Íran sem hafði svo flutt til Kanada. Hún flutti síðar út til hans til Toronto og tók eina önn utanskóla.
„Við vorum í sambandi í nokkur ár, þegar ég var í MR, í eins konar fjarbúð. Þarna kom kannski upp „rebelið“ í mér,“ segir Kristrún og brosir.
„Þetta var nú ekki alltaf auðvelt get ég sagt þér. Þetta var góður maður sem mér þykir enn vænt um, en við komum frá svo ólíkum menningarheimum. Það var heilmikil lífsreynsla fyrir mig. Ég var mjög sjálfstæð á þessum tíma og upplifði mig mjög fullorðna, þótt ég hafi í raun verið barn. En
...