Fyrir um tveimur mánuðum kom inn á háskólabókasafnið í Cambridge ungur hálfsköllóttur Þjóðverji með fremur tjásulegt skegg og þykk gleraugu. Hann bað um að fá að líta á gömul handrit, svokölluð Michelides-handrit, og þegar starfsmaður safnsins hafði …
Skákþing Reykjavíkur Gunnar Björnsson, forseti SÍ, lék fyrsta leikinn fyrir Jósef Omarsson sem tefldi við Vigni Vatnar Stefánsson. Vignir vann en mótið heldur áfram næstu vikur og lýkur 5. febrúar. Tefldar verða níu umferðir.
Skákþing Reykjavíkur Gunnar Björnsson, forseti SÍ, lék fyrsta leikinn fyrir Jósef Omarsson sem tefldi við Vigni Vatnar Stefánsson. Vignir vann en mótið heldur áfram næstu vikur og lýkur 5. febrúar. Tefldar verða níu umferðir. — Ljósmynd/Daði Ómarsson

Skák

Helgi Ólafsson

helol@simnet.is

Fyrir um tveimur mánuðum kom inn á háskólabókasafnið í Cambridge ungur hálfsköllóttur Þjóðverji með fremur tjásulegt skegg og þykk gleraugu. Hann bað um að fá að líta á gömul handrit, svokölluð Michelides-handrit, og þegar starfsmaður safnsins hafði sýnt honum handritin renndi hann í gegnum þau og virtist lesa þau jafn reiprennandi hvort sem þau voru á koptísku eða grísku … Árið 1980 hefur verið mjög óvenjulegt fyrir dr. Robert Hübner. Hann lagði fræðimennsku á hilluna og nú eftir samfellda sigurgöngu er farið að hilla undir takmarkið sem að var stefnt: réttinn til að skora á Anatoly Karpov. Galdurinn við velgengni Hübners er gífurlegur undirbúningur og nákvæmni. Hann rannsakaði allar skákir Portisch, og dvaldi tvær vikur

...