Sýning Öldu Rose Cartwright Ég er hér verður opnuð í dag kl. 14 í Listasal Mosfellsbæjar. Um er að ræða silkiþrykk- og grafíkverk en yfirskrift sýningarinnar Ég er hér er mantra sem snýst um hugmyndina um að vera til staðar í augnablikinu og tengjast umhverfinu. „Hægt er að öðlast þetta ástand án ásetnings í ákveðnum kringumstæðum, sem fangar kyrrð tíma og rúms,“ segir í tilkynningu. Þá er yrkisefni verkanna sagt vera gróður og önnur náttúruleg mótíf sem virðast dansa á yfirborðinu og birtast sem táknmyndir sem fanga ákveðin augnablik, staði eða andrúmsloft. „Endurtekið form píramídans minnir á vörðuna, haugur af steinum, reistur sem kennileiti eða minnisvarði sem setur mark á söguna.“ Alda Rose er fædd í Kaliforníu en býr á Íslandi. Hún útskrifaðist frá The Academy of Art University í San Francisco með BFA í grafík og málun. Alda Rose hefur sýnt verk sín víða, m.a. á
...