„Áætlanirnar voru vissulega metnaðarfullar og ástæður seinkana margvíslegar,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs við Morgunblaðið, en framkvæmdir eru aðeins hafnar við 42% þeirra íbúða á höfuðborgarsvæðinu sem áætlað var að yrði úthlutað 2022.
Kom þetta fram í nýlegu erindi sérfræðings Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um málið og einnig að ekki væri enn hægt að byggja á 28% þeirra lóða sem til stóð að úthluta 2023. Valdimar Víðisson, starfsbróðir Ásdísar í Hafnarfirði, segir mikla vinnu undanfarinna ára hafa skilað sér með „hafnfirsku leiðinni“ í uppbyggingu íbúða. » 6