Gunnlaugur Snær Ólafsson
Það er asnastrik í heimsklassa að geta látið sögu 855 svartra kvenna snúast um ást til látins hvíts manns. Samt tekst Tyler Perry einmitt að gera það í kvikmyndinni The Six Triple Eight, sem á að byggjast á sögu kvennaherdeildarinnar 6888 í seinni heimsstyrjöld. Ekki er orðum aukið að segja myndina vonbrigði. Leikurunum verður þó ekki kennt um, enda eru þar reynsluboltar á við Kerry Washington, Sam Waterston, Susan Sarandon og Opruh Winfrey.
Búast mátti við því að raunir kvennanna myndu litast mikið af rasisma og mótbyr eins og raunin var á þessum tíma. Perry hefur hins vegar ekki fundist sögur þessara kvenna nægilega krassandi og skáldar upp ótrúverðugan og gloppóttan söguþráð. Búinn er til herforingi sem er holdgervingur alls rasisma, virðist hann einhvers konar skopfígúra sem
...