Ingólfur Ómar Ármannsson sendi þættinum sléttubönd, sem eru þeirrar náttúru, að einnig er hægt að fara með þau afturábak: Glaður eirir, hvergi hér hróður lakan mælir. Þvaður hunsar, síður sér sjálfum mikið hælir

Pétur Blöndal

p.blondal@gmail.com

Ingólfur Ómar Ármannsson sendi þættinum sléttubönd, sem eru þeirrar náttúru, að einnig er hægt að fara með þau afturábak:

Glaður eirir, hvergi hér

hróður lakan mælir.

Þvaður hunsar, síður sér

sjálfum mikið hælir.

Og afturábak:

Hælir mikið sjálfum sér

síður hunsar þvaður.

Mælir lakan hróður hér

hvergi eirir glaður.

Fía á Sandi, Hólmfríður Bjartmarsdóttir, slær á

...