Vöruflutningar Efla Þorlákshöfn sem vöruflutningahöfn. Stefán H. Stefánsson forstjóri og Ragnar Jón Dennisson fjármálastjóri Cargow Thorship.
Vöruflutningar Efla Þorlákshöfn sem vöruflutningahöfn. Stefán H. Stefánsson forstjóri og Ragnar Jón Dennisson fjármálastjóri Cargow Thorship. — Morgunblaðið/Eggert

Tilkynnt var í síðustu viku að undirrituð hafi verið viljayfirlýsing flutningafyrirtækisins Cargow Thorship og sveitarfélagsins Ölfuss um frekari uppbyggingu á hafnarsvæði sveitarfélagsins.

Stefnt sé að áætlunarsiglingum Cargow Thorship til Þorlákshafnar síðar á árinu. Fram kemur jafnframt að með samkomulaginu skuldbindi sveitarfélagið sig til þess að skapa við höfnina aðstöðu fyrir afgreiðslu vöruflutningaskipa og gámaþjónustu. Cargow Thorship skuldbindur sig til þess að nota aðstöðuna sem meginhöfn á Íslandi á nýjum siglingaleiðum sínum á milli Íslands og meginlands Evrópu.

Markmið sveitarfélagsins með þessu samkomulagi er að efla Þorlákshöfn enn frekar sem vöruflutningahöfn fyrir sjóflutninga til og frá landinu. Að sögn fulltrúa Cargow Thorship er Þorlákshöfn sérstaklega góð staðsetning enda styttri siglingaleið en til Reykjavíkur

...