Í frétt ViðskiptaMoggans í síðustu viku var fjallað um meint samráð Lyfjavals og Lyfja og heilsu, en ESA framkvæmdi húsleit í fyrirtækjunum vegna gruns um markaðsskiptingu fyrirtækjanna tveggja í verslunarkjörnum í Mjódd og Glæsibæ. Í fréttinni kom fram að Skel, sem á 81% hlut í Lyfjavali, hefði áður birt tilkynningu um að Lyfjaval væri grunað um markaðsskiptingu með því að loka hefðbundnu apóteki í Mjódd og einbeita sér að því að starfrækja bílalúguapótek. Vísað var til þess að aðeins hálf sagan hefði verið sögð. Það skal áréttað að í uppgjörstilkynningu félagsins síðar í mánuðinum var nánar greint frá málsatvikum.