Tæknifyrirtækið KAPP keypti þrotabú Skagans 3X á síðasta ári. Gjaldþrot fyrirtækisins var mikið áfall fyrir atvinnulíf á Akranesi síðasta sumar en 128 misstu vinnuna. Ólafur Karl Sigurðarson aðstoðarforstjóri KAPP segir að búið sé að ráða 25…
Tæknifyrirtækið KAPP keypti þrotabú Skagans 3X á síðasta ári. Gjaldþrot fyrirtækisins var mikið áfall fyrir atvinnulíf á Akranesi síðasta sumar en 128 misstu vinnuna.
Ólafur Karl Sigurðarson aðstoðarforstjóri KAPP segir að búið sé að ráða 25 fyrrverandi starfsmenn til hins endurreista félags, sem heitir nú KAPP Skaginn. Fleiri hafi viljað fá vinnu en hægt var að ráða. „Við stígum ábyrg skref í því og sníðum okkur stakk eftir vexti.“ » ViðskiptaMogginn