Svartsengi Síðasta gosi lauk 9. desember og nú stefnir aftur í eldgos.
Svartsengi Síðasta gosi lauk 9. desember og nú stefnir aftur í eldgos. — Morgunblaðið/Árni Sæberg

Aflögunargögn sýna að kvika heldur áfram að safnast fyrir undir Svartsengi á Reykjanesskaga. Land rís þar enn.

Haldi kvikusöfnun áfram á sama hraða verða tólf milljónir rúmmetra af kviku undir Svartsengi í lok þessa mánaðar, eða í byrjun febrúar.

Samhliða því munu aukast líkur á kvikuhlaupi eða eldgosi, að mati Veðurstofu Íslands þar sem stuðst er við líkanreikninga.

Í tilkynningu er tekið fram að líkönin séu reist á áætluðu kvikuinnflæði á hverjum tíma en litlar breytingar á því innflæði geti haft áhrif á matið á mögulegum tímasetningum næsta eldgoss.

Eins og síðustu vikur hefur verið lítil jarðskjálftavirkni í kringum Svartsengi.

Jóhanna Malen

...