Samninganefndir kennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga sendu ríkissáttasemjara sameiginlega beiðni á þriðjudag þar sem óskað var eftir fundi í kjaraviðræðum þeirra í gær. Viðræðuhlé hafði staðið yfir frá því á föstudag og hafði ríkissáttasemjari ekki séð tilefni til að boða til fundar.
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir að farið hafi verið yfir stöðu mála á fundinum í gær og afmörkuð verkefni sem þurfi að skoða fram að næsta fundi, sem boðaður hefur verið á morgun, föstudag. „Fram að því er heimavinna, eins og tíðkast í skólum,“ segir Ástráður að lokum.
„Það eru engin sérstök tíðindi af fundinum en þetta sýnir að menn eru áfram í tilraunum sínum til að finna einhverja leið fram á við. Það er út af fyrir sig gott, en það er ekki hægt að segja að það sé rífandi gangur í þessu,“ segir Ástráður. Samninganefnd ríkisins, sem stendur að samningi við framhaldsskólakennara,
...