Vatnið er viðfangsefni Guðrúnar Önnu Matthíasdóttur í ljósmyndun um þessar mundir en sýning hennar H2O – Litir vatnsins stendur nú yfir í Borgarbókasafninu, Spönginni
Guðrún Anna Matthíasdóttir
Guðrún Anna Matthíasdóttir

Vatnið er viðfangsefni Guðrúnar Önnu Matthíasdóttur í ljósmyndun um þessar mundir en sýning hennar H2O – Litir vatnsins stendur nú yfir í Borgarbókasafninu, Spönginni. Segir í tilkynningu að hún sé heilluð af litadýrðinni og formunum sem þar leynist, sé vel að gáð, virði fyrir sér dropa, rennandi vatn, lækjarstrauma og alls konar speglanir og litbrigði.

„Guðrún notast við macro-linsu þegar hún tekur myndirnar, þannig fær hún meiri nálægð og nýja og oft nýstárlega sýn á vatnið. Markmiðið er að koma á óvart og sýna vatnið á nýjan hátt, stundum þannig að ekki er alltaf augljóst hvert myndefnið er, eða hvað það er sem speglast í vatninu.“ Þá hefur Guðrún haldið nokkrar einkasýningar, tekið þátt í samsýningum og gefið út tvær barnabækur. Sýningin H2O – Litir vatnsins hefur tvisvar verið sett upp á Korsíku.