Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur skipað Þórarin G. Pétursson í embætti varaseðlabankastjóra peningastefnu til fimm ára frá og með deginum í gær. Sjö sóttu um embættið en einn dró umsókn sína til baka. Ráðgefandi hæfnisnefnd mat Þórarin einn umsækjenda mjög vel hæfan til að gegna embættinu en aðrir umsækjendur voru ýmist metnir vel hæfir eða hæfir. Forsætisráðuneytið lagði sjálfstætt mat á störf hæfnisnefndar og umsækjendur voru allir teknir í viðtal hjá forsætisráðherra. Var það niðurstaða forsætisráðherra að Þórarinn væri hæfastur til að gegna embættinu. Þórarinn er með cand. oecon.-próf í hagfræði frá Háskóla Íslands, meistarapróf í hagfræði frá Essex-háskóla í Bretlandi og doktorspróf í hagfræði frá Árósaháskóla í Danmörku. Þórarinn hefur starfað í Seðlabanka Íslands frá árinu 1994. Hann hefur verið aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri hagfræði- og peningastefnusviðs frá árinu 2009 og sat í peningastefnunefnd bankans á
...