Fyrirliðinn Leandro Semedo í leiknum við Ísland á HM 2023.
Fyrirliðinn Leandro Semedo í leiknum við Ísland á HM 2023. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Lið Grænhöfðaeyja mætir til leiks á heimsmeistaramótinu í handbolta með það að markmiði að endurtaka leikinn frá HM 2023, sem er að komast áfram úr riðlinum og í milliriðil mótsins.

„Við erum aðeins í þriðja skipti á HM en höfum góða leikmenn og mikinn metnað. Markmiðið er að komast í milliriðilinn og í framhaldi af því berjast um að komast eins langt og hægt er,“ segir þjálfari liðsins, Portúgalinn Jorge Rito, við heimasíðu Alþjóða handknattleikssambandsins, en hann er 62 ára gamall og hefur mikla reynslu sem þjálfari, m.a. hjá Sporting og Braga í heimalandi sínu.

„Slóvenía og Ísland eru meðal bestu liða heims. Slóvenar voru á Ólympíuleikunum í sumar og Ísland er með gríðarlega mikil gæði í leikmönnum sem spila í bestu deildum Evrópu. Við vitum minnst um Kúbumenn en ljóst er að þeir

...