Portúgalski handknattleiksmaðurinn Miguel Martins verður ekki með landsliði þjóðar sinnar á HM í Króatíu, Danmörku og Noregi eftir að hafa fallið á lyfjaprófi. Þetta tilkynnti félagslið hans Aalborg en hinn 27 ára gamli Martins er lykilmaður í portúgalska landsliðinu. Portúgal leikur í E-riðli HM í Bærum í Noregi ásamt Noregi, Brasilíu og Bandaríkjunum en Miguel Oliveira hefur verið kallaður inn í portúgalska hópinn í stað Martins.