„Samþykkt um að reisa mannvirki á lóð sem Þróttur hefur samningsbundin afnot af er markleysa. Þróttur telur stjórnsýslu borgarinnar í málinu ámælisverða og óskar eftir að borgarráð taki málið til umfjöllunar.“ Þetta segir í bréfi sem…
Laugardalur Í júlí hvert ár fer alþjóðlega unglingamótið Rey Cup fram og er keppt á mörgum völlum í Laugardal. Í fyrra voru keppendur um 2.300.
Laugardalur Í júlí hvert ár fer alþjóðlega unglingamótið Rey Cup fram og er keppt á mörgum völlum í Laugardal. Í fyrra voru keppendur um 2.300. — Morgunblaðið/Arnþór Birkisson

Sigtryggur Sigtryggsson

sisi@mbl.is

„Samþykkt um að reisa mannvirki á lóð sem Þróttur hefur samningsbundin afnot af er markleysa. Þróttur telur stjórnsýslu borgarinnar í málinu ámælisverða og óskar eftir að borgarráð taki málið til umfjöllunar.“

Þetta segir í bréfi sem Knattspyrnufélagið Þróttur hefur sent borgarráði og undirritað er af Bjarnólfi Lárussyni formanni. Í bréfinu ítrekar Bjarnólfur þá afstöðu félagsins að landsvæðið sem um ræðir verði ekki tekið af því einhliða.

Í desember sl. samþykkti skóla- og frístundaráð Reykjavíkur að halda áfram vinnu sem snýr að þróun og byggingu safnskóla á unglingastigi. Kom þar einnig fram að byggður verður nýr safnskóli fyrir unglinga í Laugardal og er áætlað að hann muni rísa á svokölluðum Þríhyrningi (Miðheimum)

...