Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hyggst leggja fram frumvörp skjótt eftir þingsetningu til þess að greiða fyrir framkvæmdum við Hvammsvirkjun og einfalda regluverk vegna orkuöflunar
Jóhann Páll Jóhannsson
Jóhann Páll Jóhannsson

Andrés Magnússon

andres@mbl.is

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hyggst leggja fram frumvörp skjótt eftir þingsetningu til þess að greiða fyrir framkvæmdum við Hvammsvirkjun og einfalda regluverk vegna orkuöflunar.

Jóhann Páll staðfestir í samtali við Morgunblaðið að í ráðuneyti hans sé unnið að lagabreytingum vegna nýfallins dóms í héraðsdómi Reykjavíkur um ógildingu virkjunarleyfis Landsvirkjunar.

„Þá er horft til breytingar á lögum um stjórn vatnamála til frambúðar, til þess að skýra betur þessi atriði sem reyndi á í dóminum og bent var á í minnisblöðum í tíð forvera minna,“ segir Jóhann Páll.

„En það er líka verið að horfa til ákveðinna lagabreytinga til þess að tryggja framgang Hvammsvirkjunar og koma í veg fyrir frekari tafir.“

Ráðherra ætlar ekki að láta þar við sitja og segir frekari breytingar á

...