„Það er mjög mikil óvissa um það hversu lengi þetta heldur áfram áður en eitthvað gerist en bara miðað við hvernig þetta hagaði sér síðast þá munum við örugglega hækka hættumatið einhvern tímann í kringum mánaðamótin.“ Þetta segir…
Magnea Marín Halldórsdóttir
magnea@mbl.is
„Það er mjög mikil óvissa um það hversu lengi þetta heldur áfram áður en eitthvað gerist en bara miðað við hvernig þetta hagaði sér síðast þá munum við örugglega hækka hættumatið einhvern tímann í kringum mánaðamótin.“
Þetta segir Benedikt Gunnar Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga hjá Veðurstofu Íslands, spurður út í stöðuna á Reykjanesskaga.
„Þá höfum við nánari augu á þessu og menn tilbúnir í að það geti byrjað hvenær sem er,“ segir Benedikt. „En það þýðir ekki endilega að það byrji alveg strax, við gætum þurft að bíða svolítið,“ bætir hann við.
Þá segir Benedikt mikilvægt að bíða ekki of lengi með að hækka
...