Rannsóknir hófust nú í vikunni í Efri-Laugardælaeyju á Ölfusá ofan við Selfoss þar sem 60 metra hár stólpi, mikilvægt stykki í nýrri brú yfir ána, verður. Prammi var notaður til þess að ferja ýmsan tækjabúnað út í eyjuna þar sem teknar verða borholur og sýni tekin úr jarðvegi. Á þeim upplýsingum meðal annars verða næstu skref í verkhönnun tekin, en hún aftur byggir á þeirri frumhönnun mannvirkisins sem fyrir liggur.
Vegna mikils vatnsmagns og íss í Ölfusá tafðist nokkuð að koma prammanum á flot. Nú hefur hins vegar stjanað í ánni og því var hægt að hefjast handa. Ætlað er að rannsóknirnar sem nú standa yfir séu 10 daga verk. Að þeim loknum eru komnar í hús þýðingarmiklar upplýsingar sem verkfræðingar nota við útfærsluna.
Nýja brúin verður 330 metra löng og 19 metra

...