Samsýningin Nánd hversdagsins var opnuð í gær í Listasafni Íslands. Sýningin samanstendur af rúmlega 60 ljósmyndum eftir þekkta alþjóðlega listamenn, þau Agnieszku Sosnowska, Joakim Eskildsen, Niall McDiarmid, Orra Jónsson og Sally Mann
Samsýningin Nánd hversdagsins var opnuð í gær í Listasafni Íslands. Sýningin samanstendur af rúmlega 60 ljósmyndum eftir þekkta alþjóðlega listamenn, þau Agnieszku Sosnowska, Joakim Eskildsen, Niall McDiarmid, Orra Jónsson og Sally Mann. Sýningin er hluti af Ljósmyndahátíð Íslands og stendur til 4. maí.
„Verkin á sýningunni voru valin úr ákveðnum myndaröðum úr höfundarverki hvers og eins listamanns þar sem birtist djúp ástríða fyrir því að ljósmynda fólk á þeim stöðum sem standa því næst,“ segir í tilkynningu en nálgun listamannanna er sögð þrungin væntumþykju og hverfast um nánd, eftirtekt og íhygli gagnvart viðfangsefninu.